Dægursveiflan
April 20th, 2005cialis - buy cialis - order cialis - cialis online - cialis mastercard
Er ekki frá því að það veðrið heima á Íslandi sé alltaf best. Í morgun þegar ég hjólaði í skólann var hitinn 1°C nú er hitinn 4°C reyndar sést aðeins í sól þannig að ég á vona á að hitinn verði í kringum tjahh …. 10°C um 4 leytið. Allan tímann hefur veðrið á Íslandi verið 8°C og rigning ahhhh home sweet home segi ég. Freydís er bara afar kát þessa dagana og ég bíð spenntur eftir fréttum af vigtun dagsins, hún var 4070 grömm fyrir viku. Það virðist vera trend að íslensku börnin vaxi hraðar en sænsku börnin, allavega hrista ljóskurnar bara hausinn þegar michelin börnin koma í vigtun
Freydís er nokkurn veginn búinn að jafna sig á kvefinu, er allavega hætt að vera stífluð. Reyndar er hún doldill vindbelgur þannig að þegar hún tekur sig til og rembist vel þá verður hún eldrauð í framan og eins og lítill gamall kall en það lagast og svo kemur þessi fíni prakkarasvipur þegar loft eða meira hefur verið leyst úr læðingi. Elva er búin að vera dugleg að kíkja út með Freydísi í vagninum undanfarna daga, ég er því miður geymdur í skólanum að reyna massa þetta verkefni þannig að ég hef ekki komist í alla túrana en sú litla er bara mjög hrifinn af vagninum og vill helst að hann hossist sem mest.